600 - Efnisorð - Mannsnafn (Subject Added Entry - Personal Name) (R)
Í sviðið eru færð inn efnisorð á mannsnöfn ef fjallað er um einstaklinga eða frægar sögupersónur. Einnig notað ef viðfangsefnið eru höfundargreindir titlar. Sjá dæmasafn.
Vísar
Fyrri vísir
0 Erlent fornafn
1 Erlent ættarnafn
3 Stakt ættarnafn (ætt)
4 Íslenskt nafn (séríslenskt frávik)
Síðari vísir
0 Library of Congress Subject Headings
7 Íslenskt auðkenni (Source specified in subfield $2)
Helstu deilisvið og röð þeirra í færslu
$$a Nafn (Personal name) (NR)
$$b Númer sem fylgir nafni kóngafólks og páfa (Numeration) (NR)
$$q Uppleyst skammstöfun nafns (Fuller form of name) (NR)
$$c Tignarheiti útlendinga, afmarkað með kommum (Titles and other words associated with a name) (R)
$$d Fæðingar- og dánarár (Dates associated with a name) (NR)
$$c Auðkenni, afmarkað með sviga, t.d. starfsheiti, dulnefni, eiginnafn höfundar sem notar dulnefni (Titles and other words associated with a name) (R)
$$t Titill verks – ath. að greini er sleppt í byrjun titils (Title of a work) (NR)
$$2 cil (Source of heading or term) (NR)
Dæmi
600 47 $$a Jakobína Sigurðardóttir $$d 1918-1994 $$2 cil
600 10 $$a Isaksen, Jógvan, $$d 1950-
Leiðbeiningar / Um sviðið
Ef er umfjöllun um ákveðinn einstakling skal gera efnisorð á það mannsnafn. Sama gildir þegar viðfang fjallar um frægar sögupersónur.
Umfjöllun um höfund og tiltekið höfundarverk hans
Höfundur er skráður skv. reglum um höfunda í svið 600 og titli er skeytt þar fyrir aftan í deilisvið $$t. Ef um er að ræða verk með greini á að sleppa greininum. Ekki er deilisvið fyrir undirtitil en ef nauðsynlegt er að skrá hann er það gert með : (bil : bil) á undan.
Athugið að mannanöfn eru sett í deilisvið $$a í streng. Íslensk mannanöfn eru ekki viðsnúin en erlend mannanöfn eru alla jafna viðsnúin með þar sem eftirnafnið kemur fyrst í strengnum.
Að sækja mannanöfn í nafnmyndaskrá
Nafn einstaklings er slegið inn í deilisvið a og nafnmyndin sótt með því að velja F3. Athugið að hér þarf að nota $$2 cil og velja nafnmynd annað hvort úr CIL flipanum eða höfðalista flipanum. Ef um erlendan einstakling er að ræða þarf fyrst að athuga hvort viðkomandi finnist í CIL og ef svo er ekki þarf að breyta síðari vísi í 0 og fjarlægja $$2 cil til að tengja við LCNAMES.
Að búa til nýja nafnmynd
Ef búa á til nýja nafnmynd skal ávallt huga að framsetningu mannanafna og sérstafanotkun.