Sérstafir
Alma býður ekki upp á innbyggða sérstafatöflu.
Til þess að færa inn sérstafi eða tákn sem ekki eru á lyklaborðinu má:
- Klippa og líma textastrengi, sem innihalda sérstafina inn í skráningarfærsluna. Það má gera án þess að nota millilið eins og Notepad, eða
- Opna "Character map" sérstafatöfluna -> finna rétta táknið eða táknin í töflunni -> select eða tvísmella -> copy -> líma inn í færsluna á réttum stað.
Hægt er að festa flýtileið inn í töfluna neðst á skjáinn með því að hægrismella á táknið og velja "Pin to taskbar"