Íslendingar sem heita erlendum nöfnum
Meginreglan er sú að skrá nöfn Íslendinga samkvæmt íslenskri nafnahefð.
Í nafnmyndaskránni er gjarnan vísað frá erlendri framsetningu nafnsins. Báðar nafnmyndirnar eru þá leitarbærar.
Dæmi
$$a Manuela Wiesler $$d 1955-2007
Í nafnmyndaskrá er frávísunin $$a Wiesler, Manuela, $$d 1955-2007
$$a Wolfgang Edelstein $$d 1929-
Í nafnmyndaskrá er frávísunin $$a Edelstein, Wolfgang, $$d 1929-