Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

110 – Staðfest nafnmynd skipulagsheildar (Heading – Corporate Name) (NR)

Sviðið inniheldur valmynd heitisins.


Vísar

Fyrri vísir

1 Stjórnsýslustofnanir
2 Fyrirtæki, samtök eða aðrar skipulagsheildir en stjórnsýslustofnanir

Síðari vísir

# Óskilgreindur


Helstu deilisvið og röð þeirra í færslu

$$a Heiti skipulagsheildar (Corporate name or jurisdiction name as entry element) (NR)
$$b Undirstofnun (Subordinate unit) (R)
$$t Titill (Title of a Work) (NR)
$$x ISSN (séríslenskt frávik fyrir ritraðir skipulagsheilda) (NR – séríslenskt frávik)


Dæmi

Stjórnsýslustofnanir

110 1# $$a Suðurnesjabær
110 1# $$a Mennta- og menningarmálaráðuneytið
110 1# $$a Bláskógabyggð
110 1# $$a Hrunamannahreppur
110 1# $$a Eyjafjarðarsveit
110 1# $$a Reykjavíkurborg
110 1# $$a Reykjanesbær
110 1# $$a Sveitarfélagið Árborg
110 1# $$a Seðlabanki Íslands

Lönd sem stjórnsýslustofnanir

110 1# $$a Ísland
110 1# $$a Danmörk
110 1# $$a Bretland. $$b Office of Government Commerce
110 1# $$a Danmörk. $$b Farvandsvæsenet

Aðrar skipulagsheildir

110 2# $$a Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
110 2# $$a Borgarbókasafn Reykjavíkur
110 2# $$a Verkamannaflokkurinn (Bretland)
110 2# $$a Fangelsið Litla-Hrauni
110 2# $$a Reykjavík bókmenntaborg UNESCO

Hljómsveitir

110 2# $$a Sigur Rós (hljómsveit)
110 2# $$a Síðan skein sól (hljómsveit)
110 2# $$a Bítlarnir (hljómsveit)

Félög

110 2# $$a Félag stjórnenda leikskóla
110 2# $$a Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
110 2# $$a American Library Association
110 2# $$a Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. $$b Nemendafélag

Mannvirki (hús, virkjanir)

110 2# $$a Harpa (tónlistar- og ráðstefnuhús)
110 2# $$a Norræna húsið
110 2# $$a Búrfellsvirkjun
110 2# $$a Kárahnjúkavirkjun
110 2# $$a Hallgrímskirkja í Reykjavík

Almenningsgarðar

110 2# $$a Grasagarður Reykjavíkur

Skip

110 2# $$a Gullfoss (skip)
110 2# $$a Goðafoss (skip)
110 2# $$a Pourquoi-Pas? (skip)
110 2# $$a Vasa (herskip)


Leiðbeiningar / Um sviðið

Val á staðfestri nafnmynd skipulagsheildar

Oft getur reynst erfitt að velja rétta nafnmynd skipulagsheildar. Nafnmyndir stofnana geta verið til í fleiri en einni mynd og á nokkrum tungumálum. Þar að auki geta heiti stofnana breyst, stundum oftar en einu sinni.  Veljið það heiti sem þekktast er.

Komi ekki skýrt fram í heiti skipulagsheildar um hverskonar starfsemi sé að ræða, er notaður svigi aftan við nafn skipulagsheildarinnar, til að greina tegund starfsemi (qualifier) og til þess að aðgreina heiti skipulagsheilda, frá öðrum skipulagsheildum og sömu eða svipuðum landfræðiheitum eða mannanöfnum. Veljið alltaf sérheiti sem nafnmynd fremur en tegund skipulagsheildar, sbr. Hagaborg (leikskóli), Codex (forlag), Hólar (forlag).

Aðgreining í sviga (qualifier) skal ekki vera of þröng, nema hætta sé á að tvö eða fleiri heiti falli saman.


Skipulagsheild og undirstofnun

Notið saman yfirheiti og þrengstu einingu ef hægt er, en sleppið millieiningu (helst ekki þrefalda einingu). Til dæmis:
110 2# $$a Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.$$b Rannsóknasetur um smáríki, en ekki 110 2# $$a Háskóli Íslands. $$b Alþjóðamálastofnun. $$b Rannsóknasetur um smáríki


Nafnmyndir fyrir ritraðir skipulagsheilda

Nafnmyndafærsla fyrir ritröð skipulagsheildar skal vera greinanleg frá nafnmyndafærslu fyrir sjálfa skipulagsheildina. Til þess eru notuð deilisvið $$t og/eða $$x. Dæmi:
110 2# $$a Íslenskar orkurannsóknir (nafnmynd fyrir skipulagsheild) og 110 2# $$a Íslenskar orkurannsóknir. $$t ÍSOR (nafnmynd fyrir ritröð skipulagsheildarinnar)
110 2# $$a Veiðimálastofnun (nafnmynd fyrir skipulagsheild) og 110 2# $$a Veiðimálastofnun. $$t Fjölrit (nafnmynd fyrir ritröð skipulagsheildarinnar)
110 2# $$a Ferðamálastofa (nafnmynd fyrir skipulagsheild) og 110 2# $$a Ferðamálastofa. $$tFerðamálarannsóknir, $$x 2547-8060 ; (nafnmynd fyrir ritröð skipulagsheildarinnar)


Íslenskar og erlendar skipulagsheildir

Búið ekki til nafnmyndir fyrir erlendar skipulagsheildir eða ritraðir þeirra nema nauðsynlegt sé.