Í sviðið eru færðar inn útgáfuupplýsingar eins og þær eru settar fram á heimild lýsingar
Vísar
Fyrri vísir
# Óskilgreindur
Síðari vísir
# Óskilgreindur
Helstu deilisvið og röð þeirra í færslu
$$a Greining útgáfu (Edition statement) (NR)
$$b Ábyrgðaraðild að útgáfu (Remainder of edition statement) (NR)
Dæmi
Útgáfugreining skammstöfuð á heimild lýsingar
250 ## $$a Rev. and upd. ed.
Útgáfugreining ekki skammstöfuð á heimild lýsingar
250 ## $$a Revised and updated edition $$b by Alan Powers
Fleiri dæmi
Leiðbeiningar / Um sviðið
Stafrétt upptekt lýsingar
Útgáfugreining er tekin upp stafrétt eins og hún er sett fram á heimild lýsingar.
Ef útgáfugreining er ekki sett fram á sjálfu viðfanginu en vitað er að um nýja/breytta útgáfu er að ræða, á að greina útgáfuna innan hornklofa. Sjá dæmi.
Ef útgáfugreining er röng á viðfangi er hún sett fram stafrétt eins og hún kemur fyrir á viðfangi og rétta útgáfan greind innan hornklofa á eftir.
Endurprentanir og óbreyttar kiljuútgáfur bóka
Ekki er gerð ný færsla fyrir óbreytta endurprentun, heldur er gerð athugasemd í svið 500 í færslu 1. prentunar. Dæmi: Einnig kom út 2. prentun í des. 2013
Að sama skapi skal skrá innbundna útgáfu og óbreytta kiljuútgáfu í eina færslu. Þessi regla á við þótt útgefandi merki óbreytta kiljuútgáfu sem nýja útgáfu og þótt kiljan komi síðar út en rafbókaútgáfa sem útgefandi telur með í útgáfuröð. Útgáfuár í færslunni skal vera fyrsta útgáfuár. Færsla fyrir innbundna bók og kilju skal innihalda bæði ISBN númer innbundinnu bókarinnar og kiljuútgáfunnar í sitthvoru 020 sviðinu. Þá er einnig gerð athugasemd í svið 500. Dæmi: Einnig kom út kilja í júní 2000
Sé umfang (blaðsíðutal) innbundinnar bókar og kilju ólíkt, eða útgefandi annar, á reglan ekki lengur við og innbundna bókin og kiljan fá sitthvora færsluna.
Ef fimm ár eða fleiri líða milli útgáfu og endurprentunar, má gera nýja færslu fyrir endurprentunina, ef ISBN númer er ekki það saman.
Hljóðrituð tónlist
Upplýsingar um útgáfur eru oft ekki augljósar á viðföngum hljóðritaðrar tónlistar og útgáfuform mismunandi og því er 2. útg., 3. útg o.s.frv. ekki mikið notað. Sviðið er aðallega notað ef útgáfuupplýsingar standa á viðfangi, t.d. deluxe edition, afmælisútgáfa, limited edition o.s.frv. Einnig ef greinilega er um endurgáfu að ræða og viðfangið hefur fyrst verið gefið út af öðrum útgefanda og ljóst hvenær það var fyrst gefið út (t.d. endurútgáfur Öldu music). Nánari upplýsingar um útgáfur má skrá í 534 (|p 1. útgáfa: |c Reykjavík : SG-hljómplötur, 1970) og/eða 500 (Kom fyrst út á hljómdiski 1992).
Nótur
Sama gildir um nótur og bækur. ATH að skráning á tegund raddskrár hefur verið færð í svið 254
Tímarit
Notað ef um sérstaka útgáfu er að ræða, t.d. útgáfu í öðru landi. Dæmi: 250 ## $$a Íslensk útgáfa