Í sviðið eru færðar inn upplýsingar um efni sem fellur undir söfnunarskyldu Lbs – Hbs, kóðar fyrir efni sem tilheyrir Íslenskri útgáfuskrá og kóðar sem notaðir eru til að merkja efni sérsöfnum eða rafrænni varðveislu.
Öll söfn taka þátt í að kóða deilisvið $$c, $$e og $$f en einungis starfsmenn Lbs – Hbs kóða deilisvið $$a og $$b. Mikilvægt er að eyða út sviðinu ef færslur eru afritaðar.
Vísar
Fyrri vísir
# Óskilgreindur
Síðari vísir
# Óskilgreindur
Helstu deilisvið og röð þeirra í færslu
$$a Gerð viðfangs (NR) – kóði fyrir Íslenska útgáfuskrá (eingöngu notað af Lbs-Hbs)
c – Kort
h – Hljóðbók – hljóðbækur undir 5 mínútum fara ekki í útgáfuskrá
hl – Hljóðrituð tónlist
m – Bók (49 síður eða fleiri)
p – Bæklingur (5 – 48 síður) – bækl. undir 5 bls fara ekki í útgáfuskrá
s – Spil – ekki notað lengur
t – Tímarit
v – Myndefni – ekki notað lengur
Bætið við þessum kóðum eftir því sem við á:
b – Barnaefni
k– Kennsluefni (notið ekki b jafnframt)
x– Íslenskt rit prentað erlendis – ekki notað lengur. Notið $$f erl
z– Erlent rit prentað á Íslandi – ekki notað lengur. Notið $$f z (ekki þarf að færa inn $a og $b)
$$b Ártal útgáfu (NR) – kóði fyrir Íslenska útgáfuskrá (eingöngu notað af Lbs-Hbs)
$$c Söfnunarskylda Lbs – Hbs (NR)
1 – efni sem er:
Gefið út á Íslandi og ætlað til almennrar dreifingar
Gefið út erlendis og varðar Ísland og Íslendinga eða er eftir Íslending(a)
0 – efni sem er:
Undanþegið söfnunarskyldu Lbs-Hbs t.d. fjölrit til dreifingar í skólum, útboðsgögn, gögn ætluð til innanhússnota fyrst
og fremst, trúnaðarskjöl, bráðabirgðaúttektir o.fl.
$$e Sérefniskóðar – ef við á (R) – Notað til að merkja færslur í sérefnisskrár. Einkum notað á óútgefið efni.
gegnir (hjá) landsbokasafn.is úthlutar kóðum t.d. eftirfarandi kóðar:
ri – óútgefnar lokaritgerðir frá íslenskum háskólum
lh – óútgefin leikhandrit
$$f Sérefniskóðar – ef við á (R) – Notað til að merkja efni af ýmsum ástæðum svo sem bókagjafir og sérsöfn.
Einnig notað fyrir efni sem er undanskilið í Íslenskri útgáfuskrá.
gegnir (hjá) landsbokasafn.is úthlutar kóðum t.d. eftirfarandi kóðar:
rh – Rafhlaðan, vegna vélvirkrar afritunar færslna, flokkstala í sviði 082 er skilyrði
alm – íslenskt efni sem telst almenn útgáfa eða „markaðsefni“ – notið kóðann í vafatilvikum
yy – undanskilið íslenskri útgáfuskrá af ýmsum ástæðum (t.d. bæklingar 4 bls eða færri)
gi – íslenskt efni gefið út fyrir 1844
ix – efni sem varðar Ísland og Íslendinga eða er eftir Íslending og er gefið út erlendis
nzp – efni sem á að fá rafræna möppu í landskjarna (network zone), t.d. rafrænar skýrslur, öllum opnar
erl – efni sem er prentað/framleitt erlendis, af íslenskum útgefendum (áður $a x). Breytist ekki með endurprentunum.
z – erlent rit prentað á Íslandi. Ekki er þörf á að kóða 939 $a og $b fyrir íslenska útgáfuskrá
sérprent – sérprent sem hefur verið skráð sem bók
Dæmi
Rafræn erlend útgáfa sem varðar Ísland eða er eftir Íslending. Fellur undir söfnunarskyldu Lbs – Hbs og á að varðveita í Rafhlöðu
939 ## $$c 1 $$f ix $$f rh
Leiðbeiningar / Um sviðið
Ítarleg skráning og kóðun á viðföngum sem fara í Íslenska útgáfuskrá
Færslur sem eiga að fara í íslenska útgáfuskrá þarf að skrá og kóða á ítarlegri hátt en aðrar færslur og gæta þarf sérstaklega að samræmi í kóðum og efnisorðagjöf annars vegar og því sem fært er inn í svið 939 hins vegar.
Barnabækur og kennslubækur
939$a inniheldur yfirleitt aðeins einn kóða, sem segir til um gerð og umfang viðfangs. Undantekning eru barnabækur og kennslubækur grunn- og framhaldsskóla, sem fá tvo kóða, sem alltaf eru settir fram á eftirfarandi hátt:
Fyrri kóðinn segir til um gerð og umfang viðfangs (p fyrir bæklinga og m fyrir bækur). Seinni kóðinn segir til um innihald viðfangs (b fyrir barnabækur og k fyrir kennslubækur)
Athugið að kóðarnir b og k útiloka hvor annan og standa aldrei saman, enda eru aldrei fleiri en tveir kóðar færðir inn í sviðið.
Kóðið bækur sem kennslubækur ef þær eru sérstaklega gefnar út til notkunar í grunn – og framhaldssskólum (menntaskólum, tækniskólum, vélskólum o.s.frv.). Þ.e.a.s ef kóði í 008 (22) er c eða d.
Kóðið kennsluleiðbeiningar sem kennslubækur ef þær fylgja sérstöku kennsluefni til notkunar í grunn- og framhaldsskólum.
Almenn kennslufræði, kennslubækur fyrir háskólanemendur og kennsluefni ætlað almenningi (t.d. ökukennsla, söngkennsla, fermingarfræðsla) er ekki kóðað sem kennslubækur.
Útgáfuár og notendahópar: samræmi kóða í sviðum 008 og 939 (Bækur)
Gæta skal samræmis við kóðun á eftirfarandi hátt:
Ártal í 008 (7-10) skal vera það sama og fært er inn í 939$b
Sé notendahópur í 008 (22) a, b eða j, skal bæta kóðanum b aftan við fremsta kóða í 939$a
Sé notendahópur í 008 (22) c eða d, skal bæta kóðanum k aftan við fremsta kóða í 939$a
Tungumálakóðun: Gætið sérstaklega að því að tungumál séu rétt kóðuð í sviði 008 og í sviði 041 ef við á. Sé um að ræða þýðingu úr millimáli er það kóðað sérstaklega í 041 1# $$k
041 1# $$a ice $$h ara $$k eng – bók á íslensku, frumtitill á arabísku en þýtt úr ensku
Fjölbindaverk: Við skráningu fjölbindaverks í eina færslu er sviðið endurtekið fyrir hvert nýtt útgáfuár sem bindi í verkinu er gefið út. Sé ekki hægt að greina hvert útgáfuár skal að lágmarki færa inn fyrsta ártal fyrir fjölbindaverk sem koma út á innan við 10 árum og fyrsta og síðasta ártal ef verkið kemur út á meira en 10 ára tímabili. Ártal í fyrsta (eða eina) 939 sviðinu skal vera það sama og fyrra ártal í 008.
Almenn útgáfa og grá útgáfa: Í Íslenskri útgáfuskrá er gerður greinarmunur á útgáfu sem telst almenn (fer í almenna sölu og dreifingu) og svokallaðri „grárri útgáfu“ sem eru skýrslur, bæklingar og efni sem gefið er út af stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og öðrum aðilum, en fer ekki á markað. Til að greina almenna útgáfu frá grárri er notaður kóðinn alm í 939$f.
939## $$a m $$b 2024 $$c 1 $$f alm – bók sem gefin er út 2024 og fer á almennan markað
939## $$a m $$b 2024 $$c 1 – skýrsla sem gefin er út 2024 (grátt efni)
Athugið að kennslubækur (bækur sem eru kóðaðar sem $$a mk eða $$a pk) teljast ekki til almennrar útgáfu og fá því ekki kóðann alm.
Undanskilið Íslenskri útgáfuskrá: Eftirfarandi kóðar eru notaðir til að undanskilja efni gefið út á Íslandi frá Íslenski útgáfuskrá
Óútgefið efni (ekki söfnunarskylt á Lbs-Hbs): $$c 0
Útgefið efni (söfnunarskylt) sem ekki fer í útgáfuskrá af ýmsum ástæðum (t.d. undir 5 bls, ýmsar skrár, samþykktir og fundarsköp félaga o.s.frv): $$f yy
Efnisorð sem flokkunartæki: Ýmis efnisorð í sviði 650 eru notuð til að afmarka efnisflokka íslenskrar útgáfu. Mikilvægt er að huga vel að efnisorðagjöf.
Íslenskar/hverslenskar bókmenntir
Skáldsögur
Þýðingar úr X
Teiknimyndasögur
Ævisögur
Sjálfsævisögur
Orðabækur
Ljóð
Smásögur
Barnabókmenntir (skáldverk)
Ungmennabókmenntir (skáldverk)
Ljósmyndabækur
Varðveisla og aðgengi að rafrænni útgáfu:
Skilaskylda fyrir rafræna útgáfu og varðveislu í Rafhlöðunni
Skilaskyldu telst fullnægt ef efnið er fullskráð í Gegni og skráningarfærslan inniheldur eftirfarandi svið:
082 ## $$a DDC flokkstala
856 40 $$u virk vefslóð á opnum vef (URL) |4 . |z Heildartexti |q skráarsnið
939 ## $$f rh
Aðgengi rafrænnar útgáfu í öllum söfnum
Ef gera á rafrænt gagn aðgengilegt gegnum notendaviðmót allra safna (xx.leitir.is) þarf að vista rafræna möppu í landskjarna. Það er gert með því að bæta við kóðanum nzp í svið 939 $f. Sjá dæmasafn