ATH! Sviðið er ekki notað lengur – færið upplýsingar í svið 939
Í sviðið eru færðar inn upplýsingar um efni sem fellur undir söfnunarskyldu Lbs – Hbs. Öll söfn taka þátt í að kóða deilisvið $$c, $$e og $$f en einungis starfsmenn Lbs – Hbs kóða deilisvið $$a og $$b. Mikilvægt er að eyða út sviðinu ef færslur eru afritaðar.
Vísar
Fyrri vísir
# Óskilgreindur
Síðari vísir
# Óskilgreindur
Helstu deilisvið og röð þeirra í færslu
$$a Gerð viðfangs (NR)
c – Kort
h – Hljóðbók
hl – Hljóðrituð tónlist
m – Bók (49 síður eða fleiri)
p – Bæklingur (48 síður eða færri)
s – Spil
t – Tímarit
v – Myndefni
Bætið við þessum kóðum eftir því sem við á:
b – Barnaefni
k– Kennsluefni (notið ekki b jafnframt)
x– Íslenskt rit prentað erlendis
z– Erlent rit prentað á Íslandi
$$b Ártal útgáfu (NR)
$$c Söfnunarskylda Lbs – Hbs ( NR)
1 – efni sem er:
Gefið út á Íslandi og ætlað til almennrar dreifingar
Gefið út erlendis og varðar Ísland og Íslendinga eða er eftir Íslending
Óútgefið efni er ekki kóðað hér
0 – efni sem er:
Undanþegið söfnunarskyldu Lbs-Hbs t.d. fjölrit til dreifingar í skólum, útboðsgögn, gögn ætluð til innanhússnota fyrst
og fremst, trúnaðarskjöl, bráðabirgðaúttektir o.fl.
$$e Sérefniskóðar – ef við á (R) – Notað til að merkja færslur í sérefnisskrár. Einkum notað á óútgefið efni.
gegnir (hjá) landsbokasafn.is úthlutar kóðum t.d. eftirfarandi kóðar:
ri – óútgefnar lokaritgerðir frá íslenskum háskólum
lh – óútgefin leikhandrit
$$f Sérefniskóðar – ef við á (R) – Notað til að merkja efni af ýmsum ástæðum svo sem bókagjafir og sérsöfn.
Einnig notað fyrir efni sem er undanskilið í Íslenskri útgáfuskrá.
gegnir (hjá) landsbokasafn.is úthlutar kóðum t.d. eftirfarandi kóðar:
rh – Rafhlaðan, vegna vélvirkrar afritunar færslna, flokkstala í sviði 082 er skilyrði
alm – íslenskt efni sem telst almenn útgáfa eða „markaðsefni“
yy – undanskilið íslenskri útgáfuskrá af ýmsum ástæðum (|a og |b á ekki við)
gi – íslenskt efni gefið út fyrir 1844
ix – efni sem varðar Ísland og Íslendinga eða er eftir Íslending og er gefið út erlendis
Dæmi
Rafræn erlend útgáfa sem varðar Ísland eða er eftir Íslending. Fellur undir söfnunarskyldu Lbs – Hbs og á að varðveita í Rafhlöðu
039 ## $$c 1 $$f ix $$f rh
Leiðbeiningar / Um sviðið
Fjölbindaverk
Við skráningu fjölbindaverks í eina færslu er sviðið endurtekið fyrir hvert útgáfuár sem á að skila sér inn í Íslenska útgáfuskrá.
Skilaskylda fyrir rafræna útgáfu og varðveislu í Rafhlöðunni
Skilaskyldu telst fullnægt ef efnið er fullskráð í Gegni og skráningarfærslan inniheldur eftirfarandi svið:
039 ## $$f rh
082 ## $$a DDC flokkstala
856 40 $$u virk vefslóð á opnum vef (URL) |4 . |z Heildartexti |q skráarsnið
Spil og leikföng
Lbs – Hbs kóðar spil og borðspil sem eru íslensk eða Íslandstengd. Í augnablikinu falla ekki öll spil undir söfnunarskyldu en Lbs – Hbs safnar þeim. Leikföng eru ekki kóðuð