Sérstök staðbundin svið sem eru notuð til að auðga færslur í Gegni á mismunandi vegu.
Þessum sviðum má ekki eyða eða breyta nema af því safni sem upplýsingarnar tilheyra.
Dæmi
939 – Íslensk útgáfuskrá – upplýsingar voru áður í sviði 039 (tekið í notkun sept 2022)
943 – Upplýsingar úr sviði 300 endurteknar svo hægt sé að birta þær í stuttri færslu (tekið í notkun feb 2023)
945 – Upplýsingar úr sviði 773 endurteknar svo hægt sé að birta þær í stuttri færslu (tekið í notkun feb 2023)
946 – Formgreining AACR – flutt úr sviði 245 $h (gagnabreytingar vegna RDA, 2018)
960 – Efnisflokkar Landsvirkjunar (tekið í notkun 2020)
975 – Kerfisupplýsingar eftir útflutning færslna (Notað fyrir LBS – tekið í notkun í september 2022)
994 – Merking fyrir faldar færslur úr ákveðnum Primo viðmótum
995 – Við vistun bókfræðifærslu í Gegni verður til 995 svið fyrir íslenskt mannanafn úr 100 sviði þar sem nafnliðum er raðað í deilisvið $$a $$7 $$1
996 – Við yfirfærslu gagna úr Aleph varð til 996 svið fyrir íslenskt mannanafn úr 600 sviði þar sem nafnliðum er raðað í deilisvið $$a $$7 $$1
997 – Notað sem millisvið við afritun í svið 943. Má ekki nota í annað (tekið í notkun feb 2023)
998 – Notað sem millisvið við afritun í svið 945. Má ekki nota í annað (tekið í notkun feb 2023)
999 – Upplýsingar um skráningarheimild færslu úr Aleph