Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

500 – Almenn athugasemd (General Note) (R)

Í sviðið eru færðar inn almennar athugasemdir sem eiga ekki heima í öðrum skilgreindum 5XX-sviðum


Vísar

Fyrri vísir

# Óskilgreindur

Síðari vísir

# Óskilgreindur


Deilisvið

$$a Athugasemd (General note) (NR)


Dæmi

500 ## $$a Byggt á sögu eftir Halldór Laxness

500 ## $$a Inngangur / Vésteinn Valgarðsson: bls. 6

Fleiri dæmi


Leiðbeiningar / Um sviðið

Sviðið greinir frá atriðum sem eru almenn, eru alltaf að breytast eða falla ekki undir annan þátt lýsingar. Þar er einnig að finna atriði sem skrásetjari leggur til sjálfur.
Samræmt orðalag auðveldar leit í athugasemdum. Best er að endurtaka sviðið fyrir mismunandi athugasemdir.

Tónlist

Ekki á að setja eða endurtaka útgáfunúmer í þessu sviði (sést oft í eldri færslum)

Kvikmyndir

Hér kemur til dæmis saga verksins og athugasemd um skylt verk.