| *06 | Tegund ártals (Type of date/Publication status) Höfundarréttarár er mjög mikilvægur þáttur í tónlistarskráningu. Skrá skal bæði útgáfuár og höfundarréttarár í bókfræðifærslu og nota kóðann t. Líka í þeim tilfellum þar sem útgáfuár og höfundarréttarár eru sama árið. | |
| s | Eitt ártal Dæmi: s2015#### | |
| r | Ártal endurútgáfu. Tvö ártöl. Velja frekar t ef höfundarréttarár er á viðfanginu. Ártal endurútgáfu í sæti 7–10 og ártal frumútgáfu í sæti 11–14 Dæmi: r20151986 | |
| m | Tvö ártöl. Notað ef viðfang hefur komið út á árabili og er skráð í einni færslu – útgáfuár fyrsta og síðasta hluta Dæmi: m20092014 | |
| n | Útgáfuár óþekkt. Fyrra og síðara sæti ártals þarf að fylla með uuuu Dæmi: nuuuuuuuu | |
| q | Óvíst útgáfuár. Tvö ártöl Fyrsta líklegt útgáfuár í sæti 7-10 og síðasta líklegt útgáfuár í sæti 11-14 Dæmi: q19881991 | |
| t | Útgáfuár og höfundarréttarár. Tvö ártöl. Notað þó um sama ártal er að ræða. Útgáfuár í sæti 7-10 og höfundarréttarár í sæti 11-14 Dæmi: t20152014 og t20132013 | |
| *7-10 | Fyrra ártal (eða eina ártal) (Date 1) | |
| *11-14 | Síðara ártal (Date 2) | |
| *15-17 | Útgáfuland (Place of publication) Felligluggi fyrir algengustu lönd Sjá kóða í marksniði | |
| *18 – 19 | Kóði tegundar tónverks (Form of composition) Felligluggi Sjá tónlistarform | |
| 20 | Kóði tegundar tónlistar (Format of music) Ekki skylda að nota við frumskráningu, kemur í sóttum færslum. Valfrjálst en mælt með notkun. Helstu raddskrár a – Full score (raddskrá fyrir stjórnanda, heildarraddskrá) b – Study score (vasaraddskrá) i – Condensed score (stytt raddskrá) k – Vocal score (raddskrá fyrir söng) l – (lítill bókstafur) Score (raddskrá, notað fyrir einfalda raddskrá) | |
| 21 | Music parts | – Óskilgreindur kóði (No attempt to code) | |
| *22 | Notendahópur (Target audience) Algengustu kóðar: a – Smábarnaefni b – Barnaefni c – Kennsluefni grunnskóla d – Kennsluefni framhaldsskóla e – Fullorðinsefni j – Unglingaefni | |
| *23 | Útgáfuform (Form of item) | – Prentaðar nótur o – Rafrænar nótur | |
| 24 – 29 | Fylgiefni (Accompanying matter) Notkun á þessu sviði er valfrjáls | |
| *35-37 | Tungumál (Language) Felligluggi fyrir algengustu tungumál Sjá kóða í marksniði Kóða skal zxx þegar engin söngrödd er á nótunum Kóða skal mul þegar fleiri en eitt tungumál er til staðar og greina nánar í 041 Kóða skal und ef tungumálið er óþekkt | |
| *39 | Heimild um skráninguna (Cataloging source) c Skráningarsamvinna (Cooperative cataloging program) | |