Að lágmarki þarf að kóða þau sæti sem eru merkt *
| *06 | Tegund ártals (Type of date/Publication status) Skrá skal bæði útgáfuár og höfundarréttarár í bókfræðifærslu og því oftast notaður kóðinn t. Líka í þeim tilfellum þar sem útgáfuár og höfundarréttarár eru sama árið. Höfundarréttarár er merkt með © en útgáfuréttarár er skráð með ℗ fyrir framan ártalið. Útgáfuréttarár ℗ á aldrei að skrá í svið 008, það má einungis geta þess í 264 #4 (valfrjálst). Einungis skal nota kóðann s þegar ártal er á viðfanginu en ekki með höfundarréttarári ©. Sama gildir ef viðfangið er einungis með útgáfuréttarár ℗ og þarf að skrá líklegasta útgáfuárið. | |
| s | Eitt ártal Einungis skal nota kóðann s þegar ártal er á viðfanginu en ekki með © og/eða ℗. Dæmi: s2015#### | |
| r | Ártal endurútgáfu. Tvö ártöl Velja frekar t ef höfundarréttarár er á viðfanginu. Ártal endurútgáfu í sæti 7–10 og ártal frumútgáfu í sæti 11–14. Dæmi: r20151986 | |
| n | Útgáfuár óþekkt. Fyrra og síðara sæti ártals þarf að fylla með uuuu Dæmi: nuuuuuuuu | |
| q | Óvíst útgáfuár. Tvö ártöl Fyrsta líklegt útgáfuár í sæti 7-10 og síðasta líklegt útgáfuár í sæti 11-14 Dæmi: q19881991 eða q17uu18uu | |
| t | Útgáfuár og höfundarréttarár. Tvö ártöl Oftast notað til að skrá ártöl í tónlistarskráningu. Notað þótt um sama ártal er að ræða. Útgáfuár (oftast sama og höfundarréttarárið Dæmi: t20152014 og t20142014 | |
| *7-10 | Eitt ártal (eða fyrra ártal) (date 1) | |
| *11-14 | Síðara ártal (date 2) | |
| *15-17 | Útgáfuland (Place of publication) Felligluggi fyrir algengustu lönd Sjá kóða í marksniði | |
| *18-19 | Kóði tegundar tónverks (Form of composition) Felligluggi Sjá tónlistarform | |
| 20 | Kóði tegundar tónlistar (Format of music) || – Óskilgreindur kóði (No attempt to code) | |
| 21 | Music parts | – Óskilgreindur kóði (No attempt to code) | |
| 22 | Notendahópur (Target audience) Algengustu kóðar: a – Smábarnaefni b – Barnaefni c – Kennsluefni grunnskóla d – Kennsluefni framhaldsskóla e – Fullorðinsefni j – Unglingaefni | |
| *23 | Útgáfuform (Form of item) | – Tónlist á geisladiski, hljómplötu eða snældu o – Rafræn tónlist | |
| 24-29 | Fylgiefni (Accompanying matter) Notkun á þessu sæti er valfrjáls | |
| 30-31 | Bókmenntaform (Literary text for sound recording) ## – Hljóðrituð tónlist | |
| *35-37 | Tungumál (Language) Felligluggi fyrir algengustu tungumál Sjá kóða í marksniði Kóða skal zxx þegar ekki er sungið t.d. instrumental work Kóða skal mul þegar sungið er á fleiri en einu tungumáli og greina nánar í 041 Kóða skal und ef tungumálið er óþekkt | |
| *39 | Heimild um skráninguna (Cataloging source) c Skráningarsamvinna (Cooperative cataloging program) | |