| Gátlisti – bókverk (artists’ books) Ef um rafrænt efni er að ræða þarf að breyta sviðum 007, 300, 337, 338 og bæta við sviði 856 40 – sjá Gátlista fyrir rafrænt efni | |
| – Bókverk eru ekki heimild um sýningu eða myndbirting á verkum listamanna heldur sjálfstætt listaverk þar sem blaðsíðan og bókin eru það rými sem listamaðurinn notar til að koma hugmynd sinni til skila. – Bókverk nær yfir myndverk í formi „bókar“ allt frá fjöldaframleiddum bókum og tímaritum í ótakmörkuðu upplagi – til bæklinga, plakata og jafnvel einblöðunga. – Í bókverkum tjáir eða skráir listamaðurinn hugmyndir sínar og notar til þess alla þá þætti sem bókin er samsett úr – prentverk, samsetningu, bókband, kápu, blaðsíður, leturtegundir o.s.frv. – Því er mjög mikilvægt að halda bókverkinu sem „upprunalegustu“ og bæta helst engu við verkið í meðhöndlun innan viðkomandi stofnunar (sbr. stimplar, límmiðar, sér bókband o.s.frv.) Muna að merkja í eintakaþætti nr. eintaks – Dæmi: 52/150 | |
| LDR | 06 = a 18 = i |
| 007 | 00 = t 01 = a (venjulegt letur) |
| 008 | Tegund ártals (6), Ártal (7-10 og 11-14 ef við á), Útgáfuland (15-17), Myndefni (18-21), Notendahópur (22), Tungumál (35-37), (39) = c |
| 020 ## | $$a ISBN númer $$q nánari auðkenni ef þörf er á $$z ógilt ISBN númer (t.d. ef sama númer hefur verið notað áður) |
| 040 ## | 5 stafa safnkóði (hástafir) $$a notað ef frumskráning – $$e rda – $$d ef sótt færsla eða lagfærð |
| 041 0# | Tungumál ef texti er á fleiri en einu tungumáli án þess að viðfangið sé þýðing. Muna svið 546 $$a er endurtekið fyrir hvert tungumál |
| 082 ?? | Dewey flokkstala – Fyrir Íslenska útgáfuskrá notar Lbs-Hbs $$2 ÍB útg. 702.81 $$2 ÍB útg. 702.81 $$2 23 (gefið út erlendis og flokkað eftir 23. útgáfu DDC) |
| 100 ?# | Einstaklingur sem ber höfuðábyrgð (skapari hugverksins) Sviðið má ekki endurtaka Muna að sækja með F3 og athuga að vísar séu réttir Hlutverk valið úr felliglugga Hlutverkaheiti – má endurtaka $$e $$e myndlistarmaður (oftast) $$e höfundur $$e ljósmyndari $$e útgefandi (bætist við ef skapari hugverksins er líka útgefandi) Hlutverk geta verið fleiri Ef viðfangið er höfundarverk margra einstaklinga fer sá sem fyrstur er greindur á viðfanginu í svið 100, aðrir í svið 700 |
| 245 ?? | $$a Aðaltitill – $$b undirtitill – $$c ábyrgðaraðild Ef enginn titill þá [Án titils] eða settur inn líklegur titill í hornklofa |
| 246 ?? | Annar titill – (246 1?) með athugasemd – (246 33) þarfnast ekki athugasemdar $$i – athugasemd – $$a titill – $$b undirtitill |
| 264 #? | Útgefandi (264 #1) – Framleiðsla (prentun) (264 #3) – Höfundarréttarár (264 #4) $$a Staður – $$b Nafn – $$c Ár Valið úr felliglugga Muna svið 710 $$a samræmt heiti útgefanda sótt með F3 $$e útgefandi (einungis notað fyrir íslenska útgefendur) |
| 264 #4 | Höfundarréttarár $$c Ár – sækið © í sérstafatöflu, eða sláið inn Alt+0169 |
| 300 ## | $$a Blaðsíðufjöldi – $$b Greining á myndefni – $$c Stærð – $$e Fylgiefni (+ á undan) Samkvæmt skráningarreglum er heimilt að greina hvort myndefni er í lit eða ekki. Nokkur dæmi 300 ## $$a 26 ótölusettar bls. : $$b eingöngu myndir ; $$c 15 x 22 sm. 300 ## $$a 16 laus spjöld í umslagi ; $$c 9 x 13 sm. 300 ## $$a 20 bæklingar í túristabroti : $$b myndir ; $$c 21 x 30 sm. 300 ## $$a 162 ótölusettar auðar hvítar bls. ; $$c 25 sm. 300 ## $$a 29 laus blöð í möppu : $$b myndir ; $$c 30 sm + $$e taupoki 300 ## $$a 1 veggspjald samanbrotið (100 x 72 sm) 300 ## $$a 71 ótölusettar bls., 6 lausar bls. : $$b myndir ; $$c 27 sm + $$e 1 póstkort 300 ## $$a 24 ótölusettar bls. : $$b að meginhluta myndir ; $$c 21 x 24 sm + $$e 1 bæklingur (15 bls. ; 20 x 22 sm.) 300 ## $$a 18 ótölusettar bls. : $$b myndir ; $$c 21 sm + $$e fylgirit 525 ## $$a Samanbrotið blað (42 x 30 sm) í opnu bókverksins + 5 litlir límmiðar. Bókverkinu er haldið saman með silfurlitaðri teygju |
| 336 ## | Form innihalds valið úr felliglugga – $$a texti – $$b txt Svið endurtekið ef verulegur hluti eru myndir – $$a mynd – $$b sti Ef aðeins er myndefni þá er eingöngu – $$a mynd $$b sti |
| 337 ## | Miðlun valin úr felliglugga – $$a milliliðalaust – $$b n |
| 338 ## | Ytri gerð valin úr felliglugga – $$a bindi – $$b nc |
| 500 ## | Gefið út í xxx tölusettum eintökum (sett inn upplag og muna eintakaþátt) Gefið út í xxx tölusettum og árituðum eintökum (sett inn upplag og muna eintakaþátt) Gefið út í xxx eintökum, þar af eru xx tölusett og árituð (sett inn upplag og muna eintakaþátt) – Númer eintaks er sett í eintakaþátt Ef bókverkið er gefið út í tengslum við sýningu Dæmi: Gefið út í tilefni sýningar í Kling og Bang 20. október – 25. nóvember 2018 |
| 505 0# | Athugasemd um innihald |
| 508 ## | Athugasemd um aðra ábyrgð en getið er í 245 t.d. sýningarstjóra eða aðra listamenn. |
| 520 ## | Útdráttur og lýsing á efni verks ef við á |
| 525 ## | Athugasemd um fylgiefni ef við á Dæmi: Samanbrotið blað (42 x 30 sm) í opnu bókverksins + 5 litlir límmiðar. Bókverkinu er haldið saman með silfurlitaðri teygju |
| 546 ## | Athugasemd um tungumál ef við á Muna svið 041 ef viðfangið er á fleiri en einu tungumáli eða ef það inniheldur þýðingu Dæmi: Texti á íslensku og ensku |
| 588 ## | Stundum er enginn titill á bókverki, vantar nafn listamanns eða ártal. Ef upplýsingar í bókfræðilegri lýsingu/skráningarfærslu eru sóttar annað en á sjálft viðfangið er heimilda getið í athugasemdasviði 588. Sviðið birtist ekki á leitir.is nema sótt sé marcfærsla. |
| 600 ?? | Mannsnafn sem efnisorð. Oftast ekki, nema að það sé verið að fjalla sérstaklega um listamennina Muna að sækja með F3 og athuga að vísar séu réttir $$2 cil fyrir íslensk efnisorð |
| 650 #7 | $$a Bókverk $$2 cil (á alltaf að vera) |
| 650 #7 | $$a Sýningarskrár $$2 cil ef við á eða önnur efnisorð |
| 651 #? | Landfræðiheiti sem efnisorð (land listamanna, helst ekki fleiri en þrjú landaheiti) Muna að sækja með F3 og athuga að vísar séu réttir $$2 cil fyrir íslensk efnisorð |
| 700 ?? | Persóna sem á aðild að gerð viðfangs. Muna að sækja með F3 og athuga að vísar séu réttir Hlutverk valið úr felliglugga |
| 710 ?# | Stofnun, fyrirtæki o.s.frv. sem á aðild að gerð viðfangs. T.d. notað til að halda saman upplýsingum um íslenska útgefendur. Ef bókverkið tengist sýningu á að setja inn safn/stofnun/fyrirtæki þar sem sýningin var haldin Muna að sækja með F3 og athuga að vísar séu réttir Hlutverk valið úr felliglugga – má endurtaka $$e $$e útgefandi $$e sýningarstaður |
| 711 ?? | Sýning, ártal og staðsetning ef á við Má sleppa þegar titill er samhljóða sýningarheiti |
| 939 ## | Upplýsingar fyrir Íslenska útgáfuskrá Efni gefið út á Íslandi – söfnunarskylda Lbs-Hbs $$c 1 Ef Íslandstengt efni er gefið út erlendis $$c 1 og $$f ix $$a og $$b eingöngu notuð á Lbs-Hbs $$c, $$e og $$f notuð á öllum söfnum |