Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

6XX – Efnisorð (Subject Access Fields)

Sú stefna hefur verið mörkuð að nota síðari vísi 7 og cil í deilisvið 2 í íslenskum efnisorðum í sviðum 600 (mannanöfn), 610 (skipulagsheildir), 611 (ráðstefnur / sýningar), 630 (titilskráð rit / samræmdur titill), 650 (eiginleg efnisorð) og 651 (landfræðiheiti). Þannig næst samræmi í notkun síðari vísis fyrir öll íslensk efnisorð, sbr. 600 47 (íslensk mannanöfn), 650 #7 (eiginleg íslensk efnisorð) og 651 #7 (íslensk landfræðiheiti). Líta má á síðari vísi 7 sem auðkenni fyrir íslenskt efni / efnisorð í Gegni. Leiðbeiningar um efnisorðagjöf í Gegni má finna hér.

Þegar efnisorð eru sótt í nafnmyndaskrá með F3 þarf skrásetjari að vera staddur í viðeigandi sviði. Þegar ýtt er á F3 birtist aðeins listi yfir þær nafnmyndir sem tilheyra því sviði. Ef óvíst er hvaða sviði efnisorðið tilheyrir getur borgað sig að prófa í öðrum sviðum ef ekkert finnst við fyrstu uppflettingu. Þetta á t.d. við um landfræðiheiti sem falla saman við stjórnsýsluheiti. Þannig eru t.d. bæjarfélög alltaf skráð í svið 610 en ekki 651, jafnvel þó verið sé að fjalla um þau sem landfræðiheiti.


Efnisorð – val á sviði

600 ?? Mannanöfn

Síðari vísir 7 = íslensk mannanöfn
Síðari vísir 0 = erlend mannanöfn

610 ?? Skipulagsheild

Stofnana- og fyrirtækjaheiti t.d.:
– Ráðuneytin, Alþingi
– Stjórnmálaflokkar, trúflokkar
– Heiti bygginga og mannvirkja s.s. Gljúfrasteinn
– Kárahnjúkavirkjun, Kringlan. Brýr fara í svið 651
– Heiti skóla

611 ?? Ráðstefnur og sýningar

– Ráðstefnur, sýningar, íþróttaviðburðir, hátíðir

630 ?? Titlar, samræmdir titlar

– Samræmdir titlar
– Blaða og tímaritaheiti
– Sjónvarps- og útvarpsþættir
– Bíómyndir

650 #7 Staðfest íslensk efnisorð

Sækja með F3 í höfðalista – Samþykkt efnisorð eru auðkennd með stjörnu (*)
Hægt er að sjá víðari, þrengri og skyld heiti í Lykilskrá – efnisorða- og mannanafnaskrá Gegnis

650 #? Erlend efnisorð

Síðari vísir 0 = LC = Library of Congress
Síðari vísir 2 = MeSH = Medical Subject Headings

651 #? Landfræðileg heiti

Síðari vísir 7 = íslensk landfræðiheiti og íslenskar nafnmyndir erlendra staða
Síðari vísir 0 = Landfræðiheiti Library of Congress


Senda tillögu að nýjum efnisorðum á netfangið efnisordarad (hjá) landskerfi.is

Sjá einnig: Alphabetical list of ambiguous headings (skjal frá LC um álitamál við val á sviði)