Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

505 – Efnistal (Formatted Contents Note) (R)

Í sviðið er færð inn lýsing á efni viðfangs. Í $$a skal setja inn lýsingu á innihaldi sem er leitarbær í orðaleit og ekki er þörf á titlaleit. $$t má nota til að setja inn titla sem skulu vera leitarbærir í titlaleit. Ef þörf er á því að stakir titlar séu leitarbærir í flettileit þarf að skrá þá staka í hvern í sitt 505 svið.


Vísar

Fyrri vísir

0 Fyrirsögnin Innihald birtist á Leitir.is
2 Fyrirsögnin Meðal efnis birtist á Leitir.is

Síðari vísir

# Óskilgreindur


Deilisvið

$$a Athugasemd um innihald (Formatted contents note) (NR)
$$t Titill (Title) (R)


Dæmi

Hluti efnis, fyrirsögn Meðal efnis birtist á leitir.is

505 2# $$a Steinafræði Jóns Ólafssonar úr Grunnavík / Sigurður Steinþórsson: bls. 105-114

Einn höfundur, nokkir titlar, ábyrgðaraðild ekki greind

505 0# $$a Ævintýri Íslendings — Heim, er haustar — Nýir tímar — Póker — Komdu hingað til mín — Maddama Þorgerður

Fleiri dæmi


Leiðbeiningar / Um sviðið

Meginviðmið er að skrá efni annaðhvort í svið 505 eða greiniskrá. Æskilegt er að íslenskt efni sé greiniskráð (athugið á ekki við um hljóðritaða tónlist).
Ef efni er ekki greiniskráð eru gerðar aukafærslur á titla í svið 700 ef verk eru höfundargreind, í svið 730 fyrir samræmda titla. Fyrir óhöfundargreind verk er nóg að gera grein fyrir þeim í $$t.

Nota skal „ — “ (bil, tvöfalt bandstrik, bil) milli liða í upptalningu.

Þegar við á er notuð greinarmerkjasetning samkvæmt sviði 245 (sjá dæmi).

Mælt er með að endurtaka sviðið fyrir hvert bindi fjölbindaverks og ef greining er flókin.

Í 505 má t.d. telja upp smásögur.

Hljóðbækur og hljóðrituð tónlist

Ef þarf að aðgreina efni viðfangs nánar:
Hljómplata/snælda – Hlið 1 eða Hlið A (eins og stendur á viðfanginu). Endurtakið sviðið fyrir hvora hlið fyrir sig.

Tveir eða fleiri hljómdiskar – Diskur 1 og Diskur 2. Endurtakið sviðið fyrir hvorn disk fyrir sig.

Hljóðrituð tónlist

Hér á að telja upp þau lög/tónverk sem eru á viðfanginu. Mælst er til að nota $$t til að gera lög/tónverk leitarbær í titlaleit.

Nótur

Hér á að telja upp þau lög/tónverk sem eru á viðfanginu. Mælst er til að nota $$t til að gera lög/tónverk leitarbær í titlaleit.

Tímarit

Notað t.d. fyrir Íslandstengt efni í erlendu tímariti