Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Allar fréttir

Nýtt skráningarráð

Landskerfi hefur skipað nýtt skráningarráð. Skráningarráð Gegnis setur reglur um bókfræðilega skráningu í Gegni og hefur umsjón með skráningarréttindum í Gegni. Ráðið skipar vinnuhópa um skráningu eftir því sem þörf krefur. Eftirtalin voru skipuð í skráningarráð til eins árs: María Bjarkadóttir, TækniskólinnSigríður Vilhjálmsdóttir, Háskólinn á AkureyriSigurgeir Finnsson: Landsbokasafn Íslands – HáskólabókasafnÞorsteinn „Doddi“ Jónsson, Amtsbókasafnið á…

Lesa meira : Nýtt skráningarráð

Skráning á rafrænu efni og rafrænar möppur (portfolio) í landskjarna

Rafrænar möppur (portfolio) eru nauðsynlegar til þess að gera rafrænt aðgengi sýnilegt notendum, bæði í Gegni og á Leitir.is Til þess að einfalda utanumhald um rafrænar möppur hefur verið tekin ákvörðun um eftirfarandi: Vefútgáfa sem er opin öllum og á erindi í alla/marga safnakjarna (t.d. veflægar opnar skýrslur og kennslubækur) fær eina rafræna möppu í…

Lesa meira : Skráning á rafrænu efni og rafrænar möppur (portfolio) í landskjarna

Uppfærðar leiðbeiningar um greiniskráningu

Leiðbeiningar um greiniskráningu hafa verið fluttar til í Handbók skrásetjara og eru nú að finna undir kaflanum Skráning – > Skráningarleiðbeiningar -> Greiniskráning Leiðbeiningarnar hafa verið uppfærðar og aukið við bæði texta og skjámyndir þar sem þörf var á. Í kaflanum eru tenglar á þau sýnidæmi sem voru fyrir í handbókinni. Sérstaklega má benda á…

Lesa meira : Uppfærðar leiðbeiningar um greiniskráningu

Ný staðbundin svið og meiri upplýsingar í stuttum færslum

Nú er hægt að sjá ítarlegri upplýsingar úr bókfræðifærslum í leitarniðurstöðum í Ölmu. Nýju reitirnir eru Umfang (sýnir upplýsingar úr sviði 300) og Birtist í (sýnir upplýsingar úr sviði 773). Eins og þið sjáið er birtingin með aðeins öðrum hætti en á við önnur svið í stuttri færslu. Hér birtist eitt deilisvið og öllum upplýsingum…

Lesa meira : Ný staðbundin svið og meiri upplýsingar í stuttum færslum

Uppfærðar leiðbeiningar fyrir aðgerðina F3 (að sækja nafnmynd)

Leiðbeiningar fyrir aðgerðina F3 (að sækja nafnmynd eða höfuð) hafa verið uppfærðar í samræmi við nýjustu vendingar í nafnmyndastjórn Gegnis. Athugið tvennt sérstaklega: Uppfærðar leiðbeiningar um F3: Að sækja mannanöfn í nafnmyndaskrá Nafn einstaklings er slegið inn í deilisvið a og nafnmyndin sótt með því að velja F3. F3 opnar nafnmyndaskrá Gegnis (CIL) og býður…

Lesa meira : Uppfærðar leiðbeiningar fyrir aðgerðina F3 (að sækja nafnmynd)

Færslunúmer (MMS ID) í landskjarna og í safnakjörnum

Færslunúmer í nýja Gegni (MMSid eða metadata management system id) eru mismunandi eftir safnakjörnum. Færslunúmer færslunnar í bókfræðigrunni (landskjarna) er númerið sem er vistað í sviði 001 í bókfræðifærslunni ef hún er opnuð í lýsigagnaritli eða ef full færsla er skoðuð. Það númer endar alltaf á 6886 og er leitarbært í öllum safnakjörnum. Þegar þið…

Lesa meira : Færslunúmer (MMS ID) í landskjarna og í safnakjörnum

Færsluveiðar úr NUKAT

Pólski bókfræðigrunnurinn NUKAT er nú orðinn aðgengilegur skrásetjurum Gegnis fyrir færsluveiðar. Búið er að stilla kerfið þannig að ýmsar lagfæringar keyrast sjálfkrafa á innfluttar færslur, en skráningarsérfræðingar á Landsbókasafni (gegnir (hjá) landsbokasafn.is) taka gjarnan við ábendingum frá ykkur ef þið verðið vör við kerfisbundnar villur eða frávik í færslum frá NUKAT eða öðrum söfnum sem…

Lesa meira : Færsluveiðar úr NUKAT

Sameining bókfræðifærsla

Rétt eins og í gamla Gegni ætlum við að halda okkur við eina bókfræðifærslu fyrir hvert birtingarform. Ef þið rekist á að komnar séu tvær eða fleiri færslur fyrir sama viðfang, viljum við á Landsbókasafni (gegnir (hjá) landsbokasafn.is) gjarnan vita af því. Til að byrja með sjáum um að sameina færslurnar og passa upp á að…

Lesa meira : Sameining bókfræðifærsla

Póstlistinn Vanda

Við minnum á að allir sem hafa skráningarheimild í Gegni eiga og verða að vera á póstlistanum Vöndu. Það er sá vettvangur sem notaður er til að koma mikilvægum upplýsingum um skráningu í nýja kerfinu á framfæri. Þangað má einnig beina inn alls kyns spurningum og athugasemdum sem þið kunnið að hafa varðandi skráningu í…

Lesa meira : Póstlistinn Vanda

Svið 039 ekki lengur notað – notið svið 939 fyrir Íslenska útgáfuskrá og aðra kóða

Svið 039 virkar ekki sem skyldi í Ölmu. Til þess að bregðast við því þurfum við að taka upp nýtt staðbundið marksvið: 939 fyrir Íslenska útgáfuskrá og alla þá kóða sem áttu heima í 039 Vísar, deilisvið og allar leiðbeiningar um notkun haldast óbreyttar að sinni Leiðbeiningar í Handbók skrásetjara hafa verið uppfærðar og dæmasafni verður…

Lesa meira : Svið 039 ekki lengur notað – notið svið 939 fyrir Íslenska útgáfuskrá og aðra kóða

Breytingar á sviði 024 og 856

Nú er allt að fara að rúlla af stað í skráningu í nýja Gegni eftir sumarfrí. Landskerfi mun bjóða upp á skráningarstuðning nokkrum sinnum á næstu vikum og skrásetjarar eru hvattir til að sækja þau námskeið til að koma sér af stað í vinnu við skráningu í nýja Gegni. Við höfum þurft að breyta ýmsu…

Lesa meira : Breytingar á sviði 024 og 856

Skráning í nýja Gegni í sumar

Það er að komast mynd á skráningu í nýja Gegni. Enn eru þó atriði sem eftir á að finna lausnir á og samstilla fyrir safnakjarnnana.Þeir skrásetjarar sem ekki hafa þegar setið skráningarstuðningsfundi hjá Kristínu Lilju/Landskerfi eru því beðnir að bíða með að nýskrá bókfræðifærslur inn í kerfið. Það verða sett á námskeið um skráningarþáttinn fljótlega…

Lesa meira : Skráning í nýja Gegni í sumar