Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Nýtt skráningarráð

Landskerfi hefur skipað nýtt skráningarráð.

Skráningarráð Gegnis setur reglur um bókfræðilega skráningu í Gegni og hefur umsjón með skráningarréttindum í Gegni. Ráðið skipar vinnuhópa um skráningu eftir því sem þörf krefur.

Eftirtalin voru skipuð í skráningarráð til eins árs:

María Bjarkadóttir, Tækniskólinn
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Háskólinn á Akureyri
Sigurgeir Finnsson: Landsbokasafn Íslands – Háskólabókasafn
Þorsteinn „Doddi“ Jónsson, Amtsbókasafnið á Akureyri