Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Tölvuleikir – skráningarleiðbeiningar og sameiginlegt færslusnið

Nýr sérkafli sem inniheldur leiðbeiningar um skráningu tölvuleikja eru nú kominn í handbókina. Aðrir kaflar hafa verið uppfærðir í samræmi við þessar nýju leiðbeiningar og dæmi færð inn þar sem við á.

Nýtt sameiginlegt færslusnið, *tölvuleikur, hefur einnig verið vistað í lýsigagnaritli Gegnis.
Athugið að færslusniðið inniheldur gildi í sviðum 007, 008, 300 og 338 fyrir tölvudiska. Þeim þarf að breyta við skráningu leikja sem eru vistaðir á tölvukubbum eða á vef.