Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fræðslufundur skrásetjara 2026

Fræðslufundur skrásetjara verður haldinn föstudaginn 29. maí kl. 9:30 í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns (Þjóðarbókhlöðu).

Um staðfund er að ræða. Ekki verður boðið upp á beint streymi, en upptaka verður gerð aðgengileg síðar.

Dagskrá fræðslufundar:

Fundur settur
 – Þorsteinn G. Jónsson (Doddi), formaður skráningarráðs            
Gildi góðrar skráningar í gagnavinnslu og gæðaeftirliti
– Sigrún Hauksdóttir
Gervigreind í skráningu í Gegni
– Kristín Lilja Björnsdóttir og María Bjarkadóttir

Hlé

Nafnmyndavinna á Landsbókasafni
– Sigurgeir Finnsson
Örfréttir og áminningar
– Kristín Lilja Björnsdóttir
Umræður og önnur mál

Skráning fer fram á vef Landskerfis