Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Færsluveiðar úr NUKAT

Pólski bókfræðigrunnurinn NUKAT er nú orðinn aðgengilegur skrásetjurum Gegnis fyrir færsluveiðar.
Búið er að stilla kerfið þannig að ýmsar lagfæringar keyrast sjálfkrafa á innfluttar færslur, en skráningarsérfræðingar á Landsbókasafni (gegnir (hjá) landsbokasafn.is) taka gjarnan við ábendingum frá ykkur ef þið verðið vör við kerfisbundnar villur eða frávik í færslum frá NUKAT eða öðrum söfnum sem þið notið við færsluveiðar.